Vér biðjum þig, Drottinn, að blessa þá hrjáðu,
þú birtir oss syndugum mátt þinn á jörð.
Lát náðarsól rísa, veg þeim öllum vísa,
er villir fóru leið, hafa týnt sinni hjörð.
Þú leiðir oss, Drottinn, að lindunum hreinu,
þú ljósið þitt kveikir við himnanna stól.
Um tíma þó syrti, þá brátt aftur birtir,
þú breiðir út þinn faðm og veitir oss skjól.
Vér flytjum þér lofgjörð, þú líknar og græðir
og léttir oss göngu í stormanna klið,
frá ánauð og helsi gef hjörð þinni frelsi,
þín hjálp er jafnan nær! Ó, Guð, veit oss frið.
Veit oss þinn frið!